ÍBV komnir í undanúrslit
14.02.2018Karlalið ÍBV í hanbolta tryggði sér sæti í undanúrslitum Coca cola bikars karla í handbolta með 34:25-sigri gegn Gróttu í gærkvöldi. ÍBV var þar með síðasta liðið til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum í bikarkeppni karla í handknattleik. ÍBV mun þar af leiðandi leika til undanúrslita í keppninni ásamt Fram, Haukum og Selfossi, en dregið verður til þeirra í hádeginu í dag.