Fannar Þór til ÍBV

07.06.2018
 Leikstjórnandinn Fann­ar Þór Friðgeirs­son skrifaði í gær und­ir tveggja ára samn­ing við handknattleiksdeild ÍBV. Mbl.is greindi frá.   Fann­ar Þór hef­ur und­an­far­in átta ár leikið með fé­lagsliðum í þýsku 1. og 2. deild­un­um. Síðustu tvö árin hjá ASV Hamm en þar á und­an hjá Eintracht Hagen, Grosswallsta­dt, Wetzl­ar og Ems­detten.   Fann­ar Þór á að baki 11 A-lands­leiki.