Haukar lítil fyrirstaða fyrir ÍBV
03.02.2018 Kvennalið ÍBV í handbolta sigraði Hauka með 11 marka mun þegar liðin mættust í Olís-deildinni á Ásvöllum í dag. Varnarleikur Eyjakvenna var virkilega góður í leiknum en Haukaliðinu tókst einungis að skora fjögur mörk í fyrri hálfleiknum á móti 11 mörkum ÍBV.
Sandra Erlingsdóttir var markahæst í liði ÍBV með átta mörk. Fast á hæla hennar kom Ester Óskarsdóttir með sjö mörk.
Haukar eru í 2. sæti deildarinnar með 24 stig, tveimur stigum á eftir Val á toppnum. ÍBV er í 4. sæti með 22 stig.