Áhrif orkudrykkja á börn og ungmenni
22.02.2018Undanfarin ár hefur neysla orkudrykkja færst í aukana hér á landi og hefur úrval þessara drykkja einnig aukist mikið. Koffín er það innihaldsefni í þessum drykkjum sem geta reynst börnum og ungmennum skaðlegt sérstaklega þegar það er innbyrgt í þeim mæli sem gert er þegar þessir drykkir eru notaðir sem svaladrykkir.
„Koffín veldur útvíkkun æða, örari hjartslætti og auknu blóðflæði til allra líffæra. Einnig hefur koffín áhrif á öndun, meltingu og þvagmyndun. Mikil neysla á koffíni getur valdið höfuðverk (sem er líka fráhvarfseinkenni), svima, skjálfta, svefnleysi, hjartsláttartruflunum og kvíða“ (6h.is)
Hámarksneysla koffíns á dag fyrir mismunandi hópa:
Fullorðnir 400 mg koffín
Barnshafandi konur 200 mg koffín
Börn og unglingar 2,5 mg/kg koffín
Dæmi um magn koffíns í drykkjum og súkkulaði:
Orkuskot ( 50-60 ml) 80- 220 mg koffín
Orkudrykkur (500ml) allt að 160 mg koffín
Kaffibolli (200ml) 100 mg koffín
Kóladrykkur (500ml) 65 mg koffín
Svart te (200ml) 35 mg koffín
Dökkt súkkulaði (50g) 33 mg koffín
Börn og unglingar eru sérstaklega viðkvæm fyrir áhrifum koffíns og getur neysla þess valdið ýmsum breytingum á hegðun þeirra, s.s. svefnerfiðleikum, óróleika, pirringi og kvíða ásamt áðurnefndum áhrifum.“ (6h.is)
Vert er að hafa í huga að sum einkenni eins og svefnerfiðleikar geta komið fram við mun lægri neyslu en hámarksgildið er.
Það er því mikilvægt að foreldrar geri sér grein fyrir skaðseminni og reyni eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að börn neyti þessara drykkja.
Ekki kaupa orkudrykki fyrir börn og ungmenni !!
f.h. Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Unnur Þormóðdóttir hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar á Selfossi