Unnar Hólm nýr formaður stjórnar ÍBV íþróttafélags

18.04.2018
Aðalfundur ÍBV íþróttafélags var haldinn þann 17. apríl síðastliðinn. Formaður félagsins fór yfir skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóri félagsins fór yfir ársreikning fyrir árið 2017 sem og yfir fjárhagsáætlun fyrir árið 2018. Var þetta allt samþykkt einróma. Rekstur félagsins gekk vel á síðasta ári og hefur félagið borgað upp allar sínar langtímaskuldir. Breytingar urðu í stjórn félagsins þar sem þær Íris Róbertsdóttir formaður og Aníta Óðinsdóttir varaformaður gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi nefndarstarfa.   Ný stjórn félagsins er skipuð:   Unnar Hólm Ólafsson – formaður Guðbjörg Erla Ríkharðsdóttir Helgi Níelsson Stefán Örn Jónsson Unnur Sigmarsdóttir Páll Magnússon – varamaður Snjólaug Elín Árnadóttir – varamaður     Einnig eiga deildir félagsins tvo fulltrúa í aðalstjórn   Haraldur Bergvinsson – fulltrúi knattspyrnudeildar Karl Haraldsson – fulltrúi handknattleiksdeildar