Hlynur hljóp fimm kílómetra undir fjórtán mínútum

22.04.2018
Hlynur Andrésson varð í nótt fyrsti Íslendingurinn til þess að hlaupa fimm kílómetra undir fjórtán mínútum en hann var að keppa fyrir skólann sinn í Eastern Michigan í Bandaríkjunum.   Hlynur og liðsfélagar hans í hlaupaliði Eastern Michigan háskólans í Bandaríkjunum voru að keppa á móti í Charlottesvilla í Virginíu í gær þegar Hlynur sló metið.   Hynur hljóp á 13:58.91 sekúndum og varð því, eins og fyrr segir, fyrsti Íslendingurinn í sögunni til þess að hlaupa fimm kílómetra á undir fjórtán mínútum og því á hann nú Íslandsmetið.   Þess má geta að fyrr á árinu sló Hlynur einnig Íslandsmet í tíu kílómetra hlaupi en þá sló hann tæplega tíu ára gamalt met Kára Steins Karlssonar um tæpar átta sekúndur.   Það er því ljóst að Hlynur á framtíðina fyrir sér og spurning hvort að fleiri met verði slegin á næstunni. www.visir.is greindi frá.