ÍBV semur við franskan framherja

26.04.2018
 ÍBV hefur samið við franska framherjann Guy Gnabouyou til tveggja ára en fótbolti.net greindi frá því í gær.   Hinn 28 ára Gnabouyou er uppalinn hjá Marseille og lék á sínum tíma fimm leiki fyrir aðalliðið. Einnig kom hann við sögu í einum leik með franska U-21 landsliðinu árið 2009.   Gnabouyou hefur á ferli sínum m.a. spilað með Inter Turku í Finnlandi, Sliema á Möltu og Torquay í ensku utandeildinni.