Heimir Hallgríms dómari á Orkumótinu
29.06.2018Heimir Hallgrímsson var mættur á Týsvöllinn í morgun til þess að dæma tvo leiki í Orkumótinu. Heimir greindi frá því í fjölmiðlum eftir að hann kom heim frá Rússlandi að hann ætlaði að taka sér frí í nokkra daga og að sjálfsögðu er hann kominn heim ti Eyja til að hlaða batteríin. Heimir Hallgrímsson fékk verðskuldað frí í gær en var mættur út á völl í dag í hlutverki dómara á Orkumótinu. Gunnar Birgisson, fréttamaður á RÚV greindi frá þessu á Twitter síðu sinni í morgun.