Pepsi-deild karla: Langþráður sigur Eyjamanna
01.07.2018 ÍBV tók á móti Grindavík í 11. umferð Pepsi-deildar karla í dag þar sem heimamenn höfðu betur 3:0. Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði fyrsta markið eftir rúman hálftíma leik en Íraninn Shahab Zahedi bætti við tveimur mörkum í síðari hálfleik. Með sigrinum komst ÍBV upp úr fallsæti en mörg lið eiga leik til góða.